Fyrirtækið Controlant hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Þetta kemur fram í tilkynningu. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, afhenti Vaxtarsprotann í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal.

Controlant er alþjóðlegt fyrirtæki sem þjónustar mörg af stærstu lyfjafyrirtækjum heimsins. Hjá fyrirtækinu starfa 390 einstaklingar frá yfir 40 löndum. Velta fyrirtækisins jókst um 929% á milli áranna 2020 og 2021 þegar veltan fóru úr 865 milljónum króna í 8,9 milljarða króna.

Tvö önnur fyrirtæki, Sidekick Health og Coripharma hlutu einnig viðurkenningar.

Sidekick Health sem sérhæfir sig í heilbrigðistækni hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir góðan vöxt í veltu. Velta fyrirtækisins jókst um 160% á milli ára, fór úr 250 milljónum króna í 650 milljónir króna milli 2020 og 2021.

Coripharma hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir að velta í fyrsta sinn einum milljarði króna. Velta Coripharma fór í fyrsta skipti yfir 1 milljarð króna á síðasta ári, fór úr 888 milljónum króna árið 2020 í 1,3 milljarða króna 2021. Coripharma sérhæfir sig í framleiðslu og þróun lyfja fyrir önnur lyfjafyrirtæki um heim allan, ásamt því að þróa sín eigin lyf.

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Þetta er í 16. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar en tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Í dómnefnd voru Gísli Hjálmtýsson fyrir Háskólann í Reykjavík, Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannís, Kolbrún Hrafnkelsdóttir fyrir Samtök sprotafyrirtækja og Sigríður Mogensen fyrir Samtök iðnaðarins.

Gísli Herjólfsson, einn stofnanda og forstjóri Controlant:

„Þessi viðurkenning mun hvetja okkur áfram á vegferð okkar í að útrýma sóun í einni af mikilvægustu virðiskeðju í heimi. Á 15 árum hefur Controlant vaxið og dafnað frá því að vera hugmynd í að vera sproti sem náði að skjóta rótum. Til að vaxa þarf sproti að vera í góðum aðstæðum, með næringaríkum jarðvegi og skapandi umhverfi. Við hjá Controlant viljum nota þetta tilefni til að þakka nýsköpunarsamfélaginu á Íslandi fyrir stuðninginn og hvatninguna undanfarin ár og sérstaklega minna á hversu mikilvæg og nauðsynleg endurgreiðsla rannsóknar- og þróunarkostnaðar er fyrir nýsköpun á Íslandi. Að okkar mati er það ein af grunnforsendum fyrir nýsköpun og því að Ísland viðhaldi samkeppnishæfni auk þess að að vera frábær fjárfesting fyrir íslenska ríkið og samfélagið í heild. Ég vil þakka starfsfólki Controlant fyrir þann frábæra árangur sem við höfum náð með þrautseigju, hugviti og samheldni.“