Eik fasteignafélag og hluthafar fasteignafélagsins Festingar hf. hafa undirritað samkomulag um helstu skilmála vegna fyrirhugaðra kaupa Eikar fasteignafélags á öllu hlutafé í síðarnefnda félaginu. Greint er frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Festing er í 80% eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar fjárfestis og Ingibjargar Kristjánsdóttur, aðaleigenda Samskipa, samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins.
Heildarvirði (e. Enterprise Value) Festingar í viðskiptunum er áætlað 15,3 milljarðar króna og er fyrirhugað að kaupin verði fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé.
Fasteignir Festingar á Íslandi eru um 43.000 fermetrar að stærð í 11 fasteignum og hýsa starfsemi Samskipa um landið og eru að stærstum hluta í Reykjavík en einnig á Akureyri, Dalvík, Egilsstöðum, Ísafirði og Vestmannaeyjum.
Undanskilin í kaupunum eru dótturfélög Festingar í Noregi og Færeyjum sem eiga einnig fasteignir sem nýttar eru í starfsemi Samskipa. Ráðgert er að leigusamningar um eignirnar verði til 20 ára.
Byggt á áætlun stjórnenda Festingar um EBITDA-hagnað ársins 2025 áætlar Eik að áhrif á EBITDA fasteignafélagsins á ársgrundvelli verði 1.085 milljónir króna.
Viðskiptin eru háð fyrirvörum um niðurstöður áreiðanleikakannana, fjármögnun og endanlega skjalagerð ásamt samþykki stjórnar Eikar fasteignafélags og Samkeppniseftirlitsins.
Ráðgjafar Eikar fasteignafélags í viðskiptunum er fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance hf. og ráðgjafar seljenda er fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka.