Kortavelta erlendra ferðamanna hérlendis hefur ekki mælst hærri í septembermánuði, að nafnvirði, frá upphafi mælinga árið 2012. Aðeins einu sinni hefur ferðamannaveltan í september mælst hærri að raunvirði, það var árið 2018, að því er kemur fram í mánaðarlegri samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar.

Kortavelta erlendra ferðamanna nam tæpum 26,8 milljörðum króna í september síðastliðnum og dróst saman um tæp -29,4% á milli mánaða en jókst um 45% á milli ára.

Ferðamenn frá Bandaríkjunum voru ábyrgir fyrir 38,6% af allri erlendri kortaveltu hérlendis í september. Þjóðverjar komu næstir með 6,7% og svo Bretar með 6,6%.

Kortavelta Íslendinga jókst um 12% milli ára

Heildar greiðslukortavelta, þ.e. samanlögð innlend og erlend kortavelta, í september síðastliðnum nam rúmum 111,2 milljörðum króna og jókst um 18,4% á milli ára miðað við breytilegt verðlag.

Heildar kortavelta Íslendinga hérlendis nam rúmum 84,4 milljörðum í síðasta mánuði og jókst um 11,9% á milli ára. Innlend kortavelta í verslun nam rúmum 42,9 milljörðum, sem er 5,3% aukning frá fyrra ári. Innlend kortavelta í þjónustu jókst um 19,8% og nam tæpum 41,5 milljörðum.