Nýjar tölur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sýna að framkvæmdir séu hafnar við byggingu á 8,683 íbúðum en um 68% samdráttur sé í fjölda nýrra framkvæmda.
„Aukinn fjöldi íbúða í framkvæmdum þar sem framvinda stendur í stað á milli talninga og vísbendingar um að enn sé verið að hægja á framkvæmdum. HMS metur því að einungis 6.738 íbúðir séu í virkri framleiðslu,“ segir í greiningu HMS.
Þá greinir HMS frá því að fjöldi fullbúinna íbúða sem ekki eru teknar í notkun eykst um nærri 600% á milli ára. Segir HMS að þetta séu skýr merki um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar.
Samkvæmt nýjustu talningu er uppbygging íbúða mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem eru 69,2% af öllum íbúðum sem eru í byggingu. Flestar íbúðir eru í byggingu í Reykjavík (2.607 íbúðir) en næstflestar eru í Hafnarfirði (1.605 íbúðir).
Utan höfuðborgarsvæðisins eru flestar íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu Árborg (586 íbúðir) og Reykjanesbæ (399 íbúðir). Samdráttur í fjölda í búða í byggingu er í flestum sveitarfélögum mestur í Mosfellsbæ (45,5%) og Kópavogi (7,4%). Fjölgun er í Reykjavík um 7,2%.
Búast má við 2.838 fullbúnum íbúðum í ár og 2.624 íbúðum á næsta ári. Ný spá gerir ráð fyrir færri fullbúnum íbúðum en fyrri spár.
Samdráttur í fjölda fullbúinna íbúða þriðja árið í röð
„Enn eykst fjöldi íbúða þar sem framvinda helst óbreytt á milli talninga. Mest er aukningin á framvindustigi 3 og 4. Ef framkvæmdir eru lengi á sama framvindustigi getur það verið vísbending um að hægt hafi verið á framkvæmdum og á það sérstaklega við um framvindustig 1 (jarðvinna hafin), framvindustig 2 (undirstöður tilbúnar) og framvindustig 4 (fokhelt mannvirki) þar sem yfirleitt má vænta þess að framvinda teljist á næsta framvindustigi á þeim 6 mánuðum sem að jafnaði eru á milli talninga HMS,” segir í greiningu HM.
Flestar íbúðirnar með óbreytta framvindu eru á höfuðborgarsvæðinu en það á þó við á öllum landssvæðum.
Samkvæmt spá HMS sem byggir á talningunni þá má vænta þess að samdráttur verði í fjölda fullbúinna íbúða þriðja árið í röð og að það verði áframhaldandi samdráttur einnig á næsta ári. Nýja spáin gerir ráð fyrir að 2.838 íbúðir verði fullbúnar í ár og 2.624 íbúðir á næsta ári.