Breytingar í verðlagningu nýrra íbúða hafa ekki verið miklar eftir að hægja tók á fasteignamarkaðinum fyrir ári síðan, að því er segir í frétt á vef HMS um greiningu stofnunarinnar á kaupskrá HMS.

„Verðálag á nýjar íbúðir hefur verið í samræmi við meðaltal síðustu ára, auk þess sem álíka margar nýjar íbúðir hafa selst á undirverði, þrátt fyrir að sala á nýjum íbúðum hafi dregist saman.“

HMS segir að almennt víki söluverð nýrra íbúða í minna mæli frá auglýstu verði en söluverð annarra íbúða. Þannig seljist flestar nýjar íbúðir á ásettu verði á meðan algengast er að aðrar íbúðir seljist á undirverði.

Í júní seldust tæplega fjórar af hverjum tíu nýjum íbúðum undir auglýstu söluverði. Tekið er fram að hlutfallið hafi oft verið hærra þrátt fyrir að framboð nýrra íbúða hafi aldrei verið meira en nú og hlutfall nýrra íbúða af seldum íbúðum sé lágt í sögulegu samhengi.

„Við slíkar aðstæður mætti búast við að kaupendur myndu undirbjóða nýjar íbúðir í auknu mæli og að byggingaraðilar sæju hag sinn í því að samþykkja slík tilboð til að liðka fyrir sölu og losna undan áhvílandi skuldum.“

Mynd tekin af vef HMS.

Fram kemur að meðalfermetraverð í nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu í júní hafi verið 12% hærra en meðalfermetraverð í öðrum seldum íbúðum í mánuðinum.

Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins var verðálagið aftur á móti um 25% í júní samanborið við 14% meðalverðmun undanfarin ár.

HMS segir að í ljósi þess að margar nýjar íbúðir eru óseldar um þessar mundir geti verið áhugavert að skoða verðbreytingar á auglýstum íbúðum.

„Gögn um fasteignaauglýsingar af vefnum fasteignir.is sýna að nýjum íbúðum á söluskrá sem lækkaðar eru í verði eru nú álíka margar og á árinu 2023 þegar rólegt var um að litast á fasteignamarkaði og fasteignaverð lækkaði að raunvirði.“