Niðurfelling framkvæmdaleyfis á flutningi Lyklafellslínu 1, raflínur sem voru yfir stærstu uppbyggingarhverfum Hafnarfjarðarbæjar í Skarðshlíð og Hamranesi, árið 2018 eftir kæru Hraunvina og Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands kostuðu bæjarfélagið að minnsta kosti 8 milljarða króna.

Þetta kom fram í máli Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, á Fjár­mála­ráð­stefnu sveit­ar­fé­laga sem nú stendur yfir. „Þetta er varfærin tala, við skulum átta okkur á því.“

Uppbyggingin tafðist í þessum hverfum tafðist í um 3-4 ár að sögn Rósa. Ofangreind fjárhæð byggir á m.a. á útsvari og fasteignagjöldum sem bæjarfélagið hafði áætlað af þeim þúsundum íbúða í þessum hverfum á síðustu árum.

Eins þurfti Hafnarfjarðarbær að taka lán fyrir Skarðshlíðaskóla sem bæjarfélagið hafði áætlað að fjármagna að miklu leyti, í það minnsta fyrst um sinn, með lóðasölu.

„Niðurstaðan er að kæran og frostið sem henni fylgdi hafi kostað bæinn að minnsta kosti 8 milljarða króna. Þarna voru náttúruverndarsamtök sem fóru af stað í lok ferlisins - þegar allt var búið að eiga sér stað, umsagnir um framkvæmdaleyfi og Guð má vita hvað, sem tók misserin öll. Í lokin þegar allt er klappað og klárt þá gerist þetta.“

Nokkrir einstaklingar

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 2.749 kr. á mánuði