Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hefja sérstaka athugun sem miðar að því að kortleggja stjórnunar- og eignatengsl sjávarútvegsfyrirtækja. Þetta kemur fram í tilkynningu frá eftirlitinu.
Á vettvangi matvælaráðuneytisins stendur nú yfir heildarstefnumótun í sjávarútvegi. Hluti af því starfi er kortlagning stjórnunar- og eignatengsla í sjávarútvegi. Sem lið í þessari vinnu hefur matvælaráðuneytið nú gert samning við Samkeppniseftirlitið, sem gerir því kleift að hefja framangreinda athugun.
Í athuguninni felst upplýsingasöfnun og kortlagning sem tekur að lágmarki til eftirtalinna þátta:
- Hún taki til sjávarútvegsfyrirtækja sem eiga eða leigja fiskiskip með aflahlutdeildir með ákveðnum stærðartakmörkunum sem ákveðin verða á fyrstu stigum verkefnisins.
- Hún varpi ljósi á eignarhald eins sjávarútvegsfyrirtækis (eða aðila, eins eða fleiri, sem hefur eða hafa yfirráð yfir sjávarútvegsfyrirtæki) í öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum.
- Hún varpi ljósi á eignarhald eins sjávarútvegsfyrirtækis (aðila, eins eða fleiri, sem hefur eða hafa yfirráð yfir sjávarútvegsfyrirtæki) í öðrum fyrirtækjum hér á landi, án tillits til þess á hvaða sviði þau starfa.
- Hún varpi ljósi á áhrifavald eigenda sjávarútvegsfyrirtækja í gegnum beitingu atkvæðisréttar og stjórnarsetu í fyrirtækjum, sbr. afmörkun í liðum 2 og 3.
- Hún auki gagnsæi um stjórnunar- og eignatengsl sem rakin eru í liðum 1-4.
Fyrir liggur að yfirsýn og þekking á stjórnunar- og eignatengslum í íslensku atvinnulífi hefur mikla þýðingu í starfsemi fleiri stofnana en Samkeppniseftirlitsins, svo sem Fiskistofu, Seðlabanka Íslands og Skattsins, að því er kemur fram í tilkynningunni.
Samhliða athuguninni er því stefnt að auknu samstarfi þessara stofnana, en í því felst að umgjörð um eftirlit með stjórnunar- og eignatengslum í íslensku atvinnulífi verði styrkt, rutt verði úr vegi mögulegum hindrunum í samstarfi hlutaðeigandi stofnana og skilvirkni í stjórnsýslu á þessu sviði aukin.