Icelandair flutti alls 206 þúsund farþega í síðasta mánuði sem er um 56% af farþegafjöldanum í október 2019. Bati Icelandair á milli október 2019 og 2021 var sá mesti meðal fjögurra stærstu flugfélaga Norðurlandanna, samkvæmt samanburði Túrista.

Sjá einnig: Sætanýting í Evrópu svipuð og fyrir Covid

SAS, stærsta flugfélag Norðurlanda í farþegum talið, fylgir þar á eftir en flugfélagið flutti 1,35 milljónir manns í síðasta mánuði sem er 47% af farþegafjöldanum fyrir tveimur árum. Sama hlutfall var 39% hjá Norwegian og 34% hjá Finnair.

Túristi bendir hins vegar á að stjórnendur Norwegian hafi lýst því yfir að ekki verður stefnt að jafn miklum umsvifum og fyrir faraldurinn. Norska flugfélagið hefur hætt öllu áætlunarflugi til Norður-Ameríku og lokað fjölda starfsstöðva í Evrópu. Þá mun hin mikla niðursveifla Finnair skýrast af því að stærstur hluti starfseminnar felst í flugi til Asíu en fólksflutningar á milli Asíu og Evrópu er enn takmarkaðir.

Sé hins vegar horft á sætanýtinguna þá ber Norwegian af með 83% nýtingarhlutfall. Sætanýtingin var 69% hjá Icelandair, 60% hjá SAS og 47% hjá Finnair.