Í síðustu viku var tekin fyrsta skóflustunga fyrir byggingu 1.400 fermetra verslunar undir merkjum Nettó á Aðaltorgi í Reykjanesbæ.

Nettó er í eigu Samkaupa og eru verslanir samstæðunnar orðnar rúmlega 60 talsins. Helstu verslunarmerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin og Krambúðin.

Aðaltorg er nýtt verslunar- og þjónustutorg staðsett í þriggja mínútna fjarlægð frá Keflavíkurflugvelli. Aðaltorg er eitt af áherslusvæðum K64, þróunaráætlunar fyrir Keflavíkurflugvallarsvæðið. Þar er unnið með skipulagsmál nærsvæðis Keflavíkurflugvallar og byggðarlaganna á Suðurnesjum.

„Það er mikill heiður fyrir okkur að fá að taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem á sér stað á svæðinu. Verslunin er ein af þeim sem við erum að byggja frá grunni í samstarfi við aðstandendur Aðaltorgs og við erum gífurlega spennt fyrir því að fá að taka þátt í ferlinu frá upphafi. Á sama tíma verður frábært að geta boðið upp á Nettó verslun steinsnar frá Keflavíkurflugvelli og ég hef fulla trú á að hún muni stórbæta aðgengi að verslun á svæðinu,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs hjá Samkaupum, í tilkynningu.

„Nýja verslunin verður ein af grænu verslunum okkar en það þýðir að allt sorp verður flokkað, öll tæki sem þar má finna verða keyrð á umhverfisvænum orkumiðli, LED lýsing er í versluninni og allir frystar og megnið af kælum eru lokaðir.“