Þeir Arnar Gíslason og Guðni Finnson hafa keypt sig inn í rekstur Hljóðfærahússins. Þeir vinna ekki bara saman í Hljóðfærahúsinu heldur eru líka saman með Pollapönk, Dr. Mugison, Dr. Spock, Jónas Sig og Ensími svo eitthvað sé nefnt. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Hljóðfærahúsið er rúmlega 100 gamalt en það var stofnað árið 1916 og er elsta hljóðfæraverslun landsins og veltir um 500 milljónum á ári. Arnar tók við framkvæmdastjórn Hljóðfærahússins í lok árs 2017, en hann og Guðni hafa rekið fyrirtækið í sameiningu frá þeim tíma og eru nú orðnir hluthafar í rekstrinum.
Arnar segir það mikið ábyrgðarhlutverk að halda utan um gamalt rótgróið vörumerki eins og Hljóðfærahúsið. „Þessi 106 ára gamla verslun er hornsteinn í íslenskri menningu. það er okkar hlutverk að sjá til þess að verslunin þróist með tímanum og standist samkeppnina.“ Arnar og Guðni hafa unnið hjá versluninni í um 15 ár, en Arnar segir heiminn hafa gjörbreyst á sama tíma. „Við höfum verið að breyta versluninni allan tímann og höfum mikla trú á að verslunarrekstur sem þessi eigi eftir að lifa og dafna svo framarlega sem hlúð er að honum með nafni.“
Arnar Gíslason, framkvæmdastjóri Hljóðfærahússins:
,,Við erum mjög spenntir fyrir þessu enda höfum við óbilandi ást á hljóðfærum og tónlist. Ástríðan keyrir okkur áfram. Við elskum að taka á móti fólki í góðum fíling og leiðbeina með hljóðfæri og innblástur. Músíkmátturinn er mikill og við trúum að tónlist sé fyrir alla og gefi öllum eitthvað. Heimurinn hefur minnkað mikið og nú er okkar helsta samkeppni internetið. Við þurfum því alltaf að vera á tánum með að eiga vöruna til, vera samkeppnisfær í verði og veita góða þjónustu. Þjónustan er það sem skilur á milli okkar og netsins. Persónuleg ráðgjöf og samtal til að finna hvað hentar hverjum og einum er svo mikils virði. Við leggjum því mest upp úr því.“