Reitir hafa undirritað samkomulag um kaup á iðnaðarhúsnæði við Vesturvör 32b og tveim verslunarrýmum að Hafnarbraut 13b og 15c í Kópavogi. Fasteignirnar eru um 5.300 fermetrar að stærð og hýsa rekstur átta leigutaka.

Heildarvirði kaupanna er 2,3 milljarðar króna sem verður að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Áætlað er að afhending fasteignanna muni fara fram 1. nóvember 2024 þegar fyrirvörum um viðskiptin hefur verið aflétt en fyrirvarar eru gerðir um niðurstöður hefðbundinna áreiðanleikakannana og samþykki stjórnar Reita fyrir kaupunum.