Hið Íslenska Reðasafn ehf., sem rekur samnefnt safn á Hafnartorgi, hagnaðist um 21 milljón króna á síðasta ári samanborið við 55 milljóna tap árið 2020. Tekjur Reðasafnsins meira en þrefölduðust á milli ára og námu 147 milljónum króna.
Reðasafnið flutti á Hafnartorg árið 2020 eftir að hafa verið á Laugavegi 116 í nærri áratug. Safnið var þar áður rekið á Húsavík en starfsemin var færð í bæinn að frumkvæði Hjartar Gísla Sigurðssonar, syni stofnandans Sigurðar Hjartarsonar, sem tók við safninu árið 2011.
Samkvæmt heimasíðu Reðasafnsins telur það nú 217 reði og reðurhluta af nálega öllum land- og sjávarspendýrum hinnar íslensku fánu.
Eignir félagsins voru bókfærðar á 65 milljónir, þar af vörur varanlegir rekstrarfjármunir um 17 milljónir og handbært fé um 29 milljónir. Eigið fé Reðasafnsins nam 54 milljónum. Framangreindur Hjörtur Gísli reðurfræðingur er aðaleigandi félagsins.
