Menningar- og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, undirritaði í gær samning við Íslandsstofu um markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað ferðamanna. Samningurinn gildir til loka árs 2025 og felur í sér samtals 200 milljónir króna framlag frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu.
„Um er að ræða alþjóðlega neytendamarkaðssetningu fyrir íslenska ferðaþjónustu til að fylgja eftir áherslum í Ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun hennar til 2030, sem samþykkt var á Alþingi í júní 2024. Samningurinn er einnig hluti af aðgerðum stjórnvalda til að verja gjaldeyristekjur frá ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Markaðssetning samkvæmt samningnum verður starfrækt á völdum erlendum mörkuðum. Ráðuneytið segir að markmiðið að viðhalda og koma á framfæri ímynd og orðspori Íslands, viðhalda samkeppnisstöðu íslenskrar ferðaþjónustu og miðla réttum upplýsingum um stöðu mála ef upp koma náttúruhamfarir eða önnur áföll.
„Ferðaþjónusta er okkar stærsta atvinnugrein og þar verða til mestu gjaldeyrisverðmætin. Við getum hins vegar ekki tekið þeirri stöðu sem sjálfsögðum hlut og það er afar brýnt að við, eins og aðrar þjóðir, höldum úti markvissri og viðvarandi markaðssetningu á Íslandi til að koma á framfæri ímynd Íslands sem leiðandi í sjálfbærri þróun og sem eftirsóknarverðs áfangastaðar ferðamanna,“ segir Lilja Dögg.
„Ekki er síður mikilvægt að vera undir það búin að miðla réttum upplýsingum þegar áföll dynja á okkur. Með því höldum við áfram að byggja upp markaði, treysta stöðu okkar og stuðla að sjálfbærri og öflugri ferðaþjónustu til lengri tíma.“