Fyrirtækið Baader Skaginn 3X á Akranesi hefur óskað eftir því að verða tekið til gjaldþrotaskipta.
Samkvæmt Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verkalýðsfélags Akraness, munu 128 starfsmenn missa vinnuna.
„Var að koma af fundi rétt í þessu en þessi fundur var vægast sagt gríðarlega erfiður en á þessum fundi tilkynntu forsvarsmenn hátæknifyrirtækisins Skaginn 3 X 128 starfsmönnum að fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þetta gjaldþrot þessa rótgróna fyrirtækis þýðir að 128 fjölskyldur missa lífsviðurværi sitt en um 100 af þessum 128 hafa búa hér á Akranesi og nágrenni en Skaginn 3 X er einn af stærstu vinnustöðunum hér á Akranesi. Rétt er að geta þess einnig að fjöldi afleiddra starfa tapast einnig samhliða þessu gjaldþroti,“ skrifar Vilhjálmur.
Viðskiptablaðið greindi frá því í síðustu viku að veruleg óvissa ríkti um rekstrarhæfi Skagans 3X ef ekki tækist að afla viðbótarfjármagns.
Til marks um slæma fjárhagsstöðu Skagans 3X var eigið fé félagsins neikvætt um 3,3 milljarða króna í lok síðasta árs.
Skaginn 3X velti 4,4 milljörðum króna á síðasta ári en árið áður nam velta félagsins rétt rúmlega 1 milljarði króna. Þess ber þó að geta að eins og fyrr segir voru þrjú dótturfélög sameinuð Skaganum 3X.
Þýska fyrirtækið Baader keypti 60% hlut í Skaganum 3X haustið 2020, af stofnandanum Ingólfi Árnasyni, og eignaðist félagið svo að fullu í febrúar 2022.
Atvinnumöguleikum slátrað af öfgafólki
Vilhjálmur segir að þökk sé fyrirkomulagi í fiskveiðistjórnarkerfinu sé búið að rústa öllum sjávarútvegi á Akranesi. Rifjar hann upp að árið 2004 voru 250 manns í vinnu hjá fiskvinnslufyrirtækinu Haraldi Böðvarssyni á Akranesi og það ár var landað um 170 þúsund tonnum og fyrirtækið greiddi á þriðja milljarð í laun. „Í dag er allt farið!“
„Fyrir nokkrum dögum var möguleikum okkar á veiðum og vinnslu hvalaafurða á þessari vertíð slátrað með handónýttri og ólöglegri stjórnsýslu stjórnvalda og þrýstingi frá „öfgafólki“. Mitt mat er að núna sé komið nóg og nú verður eitthvað að gerast í atvinnumálum okkar Akurnesinga. Enda morgunljóst að ekkert sveitarfélag getur þrifist án þess að hafa sterkt og öflugt gjaldeyrisskapandi atvinnulíf en það er með slíkum störfum sem öll sveitafélög eflast og styrkjast,“ skrifar Vilhjálmur.
„Rétt er að upplýsa að öllum starfsmönnum Skútunnar, sem N1 á og rekur, var sagt upp störfum fyrir nokkrum dögum og munu uppsagnir taka gildi frá næstu áramótum en mér telst til að á þriðja tug starfsmanna séu undir í þeirri uppsögn. Það er óhætt að segja að þessi tíðindi séu enn eitt þunga höggið sem við Akurnesingar höfum þurft að þola í atvinnumálum á liðnum árum og mér er það til efs að nokkurt sveitarfélag hafi þurft að þola eins miklar hamfarir í atvinnumálum eins og við Skagamenn að undanskildum vinum okkar í Grindavík.“
Vilhjálmur skorar jafnframt á fyrirtæki til að skoða möguleika á að hefja starfsemi á Akranesi.
„Það blasir við að þrátt fyrir að allir innviðir hér á Akranesi séu til algjörra fyrirmyndar þá hefur okkur alls ekki tekist að efla atvinnulífið hér á Akranesi. Nánast enginn sjávarútvegur er eftir, ekkert hótel sem leiðir til þess að við erum ekki með hvað ferðaþjónustu varðar. Við verðum að fara að opna augun fyrir þessum staðreyndum og krefjast þess að stjórnvöld, bæjarstjórn og við öll ráðumst í eflingu á gjaldeyrisskapandi atvinnutækifærum okkur Akurnesingum til hagsbóta.“