Steindór ehf., félag utan um fasteignaverkefni á Steindórsreitnum í Vesturbænum, hagnaðist um 741 milljón króna á síðasta ári, samanborið við 316 milljónir árið 2023, samkvæmt nýbirtum ársreikningi.
Hagnaðinn má að stærstum hluta rekja til matsbreytingar upp á 975 milljónir króna. Félagið seldi íbúðir fyrir 986 milljónir króna og nam rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingar 222 milljónum króna.
Eignir Steindórs ehf. voru bókfærðar á 7,5 milljarða króna í árslok 2024, en þar af voru fasteignir og lóðir tæplega 7,2 milljarðar króna. Inni í þeirri tölu er eignfærður kostnaður upp á 1,9 milljarða króna. Bókfært eigið fé nam yfir 3 milljörðum króna í lok síðasta árs.
Sala á íbúðum á Steindórsreitnum hófst síðasta sumar. Samkvæmt heimasíðu fasteignverkefnisins eru 45 af 84 íbúðum enn til sölu.
Steindórsreiturinn markast af Framnesvegi, Sólvallagötu og Hringbraut. Um er að ræða 5 hæða bogadregið íbúðarhús með útsýni út á haf og fyrir aftan eru tvö önnur íbúðarhús. Auk íbúðanna er rými á jarðhæð bogadregna hússins fyrir verslun og þjónustu en undir húsunum er bílakjallari með stæðum fyrir 86 bíla. Framkvæmdir á reitnum hófust haustið 2021.
Steindór ehf. er í helmingseigu fjárfestingafélagsins IREF, sem þeir Gunnar Sverrir Harðarson og Þórarinn Arnar Sævarsson, aðaleigendur Re/Max, eiga. Eignabyggð ehf., félag Brynjólfs Smára Þorkelssonar, og HB eignir ehf., félag Hannesar Þórs Baldurssonar, eiga auk bæði 25% hlut um sig.