Terra Einingar ehf., dótturfyrirtæki Terra, hefur fest kaup á öllu hlutafé Öryggisgirðinga ehf. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Terra Einingar ehf., dótturfyrirtæki Terra, hefur fest kaup á öllu hlutafé Öryggisgirðinga ehf. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Terra Einingar hefur verið í miklum vexti undanfarin ár og hafa húseiningar fyrirtækisins notið aukinna vinsælda þar sem sveigjanleikinn er í fyrirrúmi. Með kaupunum á Öryggisgirðingum sjáum við mikil tækifæri í auknu vöruúrvali beggja fyrirtækja sem saman munu styrkja stöðu sína á markaði," segir Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga.

„Eftirspurn eftir sveigjanlegum lausnum bæði hvað varðar húseiningar, girðingalausnir og aðgangskerfi hefur aukist verulega. Með breiðu vöruúrvali Terra Eininga og Öryggisgirðinga munu félögin byggja sterka heild sem öflugt fyrirtæki í iðnaði.“

Öryggisgirðingar bjóða heildarlausnir á girðingum, hliðum og aðgangskerfum fyrir stofnanir, fyrirtæki, heimili og sumarhús. Lausnirnar eru smíðaðar á Íslandi eftir þörfum viðskiptavina og veitir fyrirtækið heildarlausn á uppsetningu og viðhaldi. Félagið velti 379 milljónum króna í fyrra.

Terra Einingar sérhæfir sig í einingalausnum í formi húseininga og geymslulausna. Einingalausnir fyrirtækisins eru sagðar henta fyrir ólíka starfsemi. Kostir lausnanna séu lægri byggingarkostnaður, styttri framkvæmdatími og að auðvelt sé að endurnýta byggingarnar og færa þær til. Tekjur Terra Eininga námu 1,2 milljörðum króna í fyrra.