Hvassviðri sem gengur yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair seinni partinn á morgun, 31. janúar, að því er segir í tilkynningu Icelandair. Í heild verður 30 ferðum til landsins aflýst og 30 frá landinu.
„Icelandair fylgist vel með veðurspám næstu daga og verður félagið í sambandi við farþega ef breytingar verða á flugi.“
Flug til Evrópu í fyrramálið er á áætlun en raskanir eru á flugi til Íslands frá Evrópu eftir hádegið á morgun og einnig flugi sem er á áætlun til Norður-Ameríku og Evrópu síðdegis.
Icelandair segir að af þessum völdum þurfi einnig að aflýsa flestum ferðum bæði frá Norður-Ameríku og til Evrópu snemma á laugardagsmorgun, 1. febrúar.
Innanlandsflug er enn sem komið er á áætlun en mögulegt er að komi til raskana á því.
Endurbókunarferlið taki lengri tíma en vanalega
Icelandair segir að farþegar sem áttu bókað með flugi sem nú hefur verið aflýst verði endurbókaðir og munu fá senda nýja ferðaáætlun.
„Vegna umfangs röskunarinnar má búast við að endurbókunarferlið taki lengri tíma en venjulega. Farþegum er þökkuð þolinmæðin og bent á að fylgjast vel með þeim skilaboðum sem félagið sendir auk þess sem hægt er að fylgjast með á vef félagsins undir bókunin mín og í Icelandair appinu. Ekki er þörf á að hafa samband við Icelandair nema ný ferðaáætlun falli ekki að ferðalaginu.“