Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra, sóttist eftir að fá heiðurssæti á lista Viðreisnar fyrir síðustu alþingiskosningar. Það reyndist auðsótt mál.
Ástæðan fyrir því að hann sóttist ekki eftir einu af efstu sætunum var að sögn hans sú að hann elskaði starf sitt sem hagfræðikennari við Háskóla Íslands. „Þar sé ég mína framtíð,“ skrifaði hann á samfélagsmiðla.
Það kaus því enginn Daða til Alþingis nema Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem tilnefndi hann í embætti fjármálaráðherra í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur.
Týr gat vel séð ákveðin rök fyrir því að kalla hagfræðiprófessor úr háskóla til starfa sem fjármálaráðherra – þó hann hefði ekki verið kjörinn á þing. Umboðsleysið gæti jafnvel þýtt að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af skammtímahugsun og vinsældakeppni, heldur gæti staðið í vegi fyrir pópúlísku útgjaldaæði úr ríkissjóði.
En Daði Már hefur ekki staðist þær væntingar. Þvert á móti. Það er eins og hann hafi skilið eftir innsýn sína í lögmál auðs og eklu uppi í Háskóla, þegar hann flutti sig niður í Arnarhvol.
Sem umboðslaus fjármálaráðherra mælir hann nú fyrir tillögum sem eiga rætur í málflutningi Flokks fólksins – þar á meðal frumvarpi um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og breytingar á starfsemi lífeyrissjóða. Í því samhengi minnir samband Daða og Ingu Sæland um margt á samstarf Baldurs og Konna hér um árið.
Lífeyrissjóðir og aðrir aðilar hafa í umsögnum harðlega gagnrýnt frumvarpið og bent á að það muni draga úr þátttöku á vinnumarkaði og feli í sér stórfellda eignaupptöku á lífeyrisréttindum eftirlaunafólks.
Daði hefur reyndar sagt í fjölmiðlum að eftirlaunaþegar muni ekki bera skarðan hlut frá borði verði frumvarpið samþykkt. Hann hefur hins vegar ekki þurft að svara þeirri lykilspurningu: Hvaðan eiga peningarnir að koma? Heyrst hefur að hann hafi lofað lífeyrissjóðum að þeim verði bætt tjónið upp – með því að sækja skattfé annars staðar frá.
Slík hringavitleysa virðist í fullu samræmi við verknaðarmynstur þessarar ríkisstjórnar: fé er borið á einn hóp, svo sótt til annars. Til dæmis skattlagning á heitu vatni til að bæta sjávarútvegssveitarfélögum það tjón sem hækkun veiðigjalda mun valda.
Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 25. júní 2025.