Annarsflokks er hönnunar- og rannsóknarverkefni sem sýnir fram á notagildi og gæði annars flokks æðardúns. Sýningin er hluti af HönnunarMars þar sem gestir fá að sjá frumgerðir af fatnaði úr annarsflokks æðardúni sem verður framleiddur hérlendis í framhaldi sýningar ef lögum um gæðamat verður breytt.