Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt að ráðist verði í miklar breytingar á sundlauginni í vesturbæ bæjarins. Um er að ræða elststa hluta sundlaugarmannvirkjanna, sem í daglegu tali ganga undir nafninu "barnalaugin". Á þessu ári eru áætlaðar 100 milljónir í verkið. Talið er að verkið í heild kosti tvisvar til þrisvar sinnum meira.

Rífa á gömlu timburklefana við laugina og byggja nýja búningsklefa, útiklefa, eimbað og heita potta. Gert er ráð fyrir að útboð fari fram á næstunni.

Nausynlegt er að ráðast í þessar endurbætur því í ljós hefur komið að 40 ára gamalt laugakerfi gömlu laugarinnar þarf að endurbæta. Sama gildir um búningaklefana klefana, þeir eru orðnir gamlir og fúnir.

Aðal sundlaugin verður opin áfram og reynt verður að halda truflunum í lágmarki.