Svo virðist sem Adidas íþróttavöruframleiðandanum sé að takast að velta Nike af stalli sem stærsti framleiðandi íþróttavara í heiminum. Félögin hafa átt í harðri baráttu um hvort þeirra sé stærra en hagnaður Adidas jókst um 37% á síðasta ársfjórðungi miðað við sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn nam þá 144 milljónum evra eða um 13 milljörðum króna. Sala á fjórðungnum jafngilti 2.459 milljörðum evra sem er aukning upp á 47%.
"Við erum greinilega orðnir markaðsleiðandi á stærstu mörkuðunum og því ekki nema eðlilegt að menn líti á okkur sem stærsta framleiðanda heims," sagði Herbert Hainer, forstjóri félagsins, á blaðamannafundi fyrir skömmu. Þrátt fyrir þessar fullyrðingar er ekki hægt að horfa framhjá því að bandaríski framleiðandinn Nike hagnaðist á sama tíma um 256 milljónir evra eða 23 milljarða króna og veltan nam 3,3, milljörðum dala á tímabilinu frá desember til febrúarloka. Þó Adidas vaxi hraðar virðist Nike enn vera stærra.
Digurbarkalegar yfirlýsingar forráðamanna félaganna eru til marks um harðnandi slag á milli þeirra en það kom vel fram í aðdraganda heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem hefst í Þýskalandi innan nokkurra vikna. Adidas hefur þar haft vinninginn sem einn af aðal styrktaraðilum keppninnar en félagið leggur til knöttinn sem keppt verður með og útvegar sex af sterkustu knattspyrnuþjóðunum búninga. Augljóst er að félagið verður áberandi á HM í sumar. Á þeirri forsendu að aukin eftirspurn verði eftir vörum félagsins hefur Hainer tilkynnt að félagið vænti þess að selja vörur tengdar knattspyrnu fyrir 1,2 milljarða evra þetta árið sem er 20% hækkun frá fyrri spá.
Í janúar síðastliðnum keypti Adidas bandaríska framleiðandann Reebock fyrir 3 milljarða evra. Að sögn Hainer hefur gengið vel að samræma rekstur félaganna og markaðurinn virðist trúa því enda hafa bréf félagsins hækkað jafnt og þétt í kauphöllinni í Frankfurt.