Kauphöll Íslands hf. hefur samþykkt framkomna beiðni um afskráningu hlutabréfa Fiskmarkaðs Íslands hf. af Aðallista Kauphallarinnar. Félagið uppfyllir ekki skilyrði skráningar um dreifingu hlutafjár, sjá tilkynningu dags. 30. maí sl. Félagið verður afskráð eftir lokun viðskipta föstudaginn 9. júní 2006 með vísan til ákvæðis 7.5.2. í reglum fyrir útgefendur verðbréfa í Kauphöll Íslands hf.