Rússneski auðkýfingurinn og fyrrum eigandi Chelsea, Roman Abramovich, gæti skuldað breskum yfirvöldum allt að einum milljarði punda, eða um 173 milljörðum íslenskra króna, eftir misheppnaða tilraun til að komast undan skatti.
Samkvæmt gögnum sem BBC hefur undir höndum fjárfesti Ambramovich fyrir um sex milljarða dala í Bretlandi í gegnum félög skráð á Bresku Jómfrúareyjunum.
Hluti af því fé er sagt tengjast kaupum hans á knattspyrnuliðinu Chelsea FC, en Abramovich var eigandi Chelsea á árunum 2003 til 2022.
Eugene Shvidler, fyrrverandi stjórnarmaður Chelsea FC, er sagður hafa verið lykilmaður í að koma fé undan skatti en sérfræðingur í skattalöggjöf segir við BBC að gögnin bendi til þess að Shvidler hafi tekið stefnumarkandi ákvarðanir um skattaskjólsfélögin.
Abramovich, sem býr nú til skiptis í Istanbúl, Tel Aviv og Sochi í Rússlandi, neitar að hafa vitað um eða að hafa borið ábyrgð á þessum millifærslum.
Lögfræðingar hans segja að hann hafi alltaf fengið óháða faglega skatta- og lögfræðiráðgjöf og að hann hafi hagað sér í samræmi við þá ráðgjöf.
Lögfræðingar Shvidlers neita ásökunum og segja að BBC byggi umfjöllun sína á „trúnaðargögnum sem gefa ekki fullnægjandi mynd af raunveruleikanum“