Eins og allir veiðimenn á Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins og gamalreyndur leiðsögumaður, sér nokkrar uppáhaldsflugur. Bergþór var í um tuttugu ár leiðsögumaður við Grímsá á sumrin.
„Í miklu uppáhaldi er fluga sem Richard Rampton, Breti sem ég var lengi með í Grímsá, ásamt bróður hans David, hannaði, hnýtti og kallaði Halo'Blue. Þessi fluga er að mörgu leiki lík Haugnum og hefur skilað sínu og vel það í Grímsá frá 1996. Síðan er ég alltaf hrifinn af Green butt og Black & Blue. Í Mývatnssveitinni eru það klassísku straumflugurnar, sem eru í uppáhaldi."
„Í laxveinni nota ég strippið mest enda rennslið í þeim ám sem ég stunda mest að mörgu leiti passandi fyrir það en hitch (í. gárubragð) og yfirborðstökurnar sem það kallar fram bætir, hressir og kætir, sérstaklega í snemmsumar veiði,” segir Bergþór.