Eins og veiðimenn vita þá hefur hnúðalaxagengd aukist í íslenskum hin síðari ár. Hnúðlaxar ganga upp ár á oddatöluári og því má gera ráð fyrir því að veiðimenn verði varir við hnúðlaxa í sumar.
Hnúðlaxar eru samt engin nýlunda hér. Sem dæmi voru tveir hnúðlaxar færðir til bókar í veiðibók Langár á Mýrum árið 1926. Fram til ársins 2015 veiddust nokkrir hnúðlaxar annað hvert ár í íslenskum ám. Árið 2017 varð breyting þegar 54 hnúðlaxar voru skráðir og síðan þá hefur hnúðlaxagengd aukist jafnt og þétt og árið 2023 veiddust um 650 hnúðlaxar í íslenskum ám.
Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, beinir því til veiðimanna að ef þeir landi hnúðlaxi þá vilji Hafrannsóknastofnun gjarnan fá slíkan afla inn á borð til sín til rannsókna. Ekki bara hreistursýni heldur heilan fisk.
Fjallað er um málið í sérblaðinu Veiði sem fylgdi Viðskiptablaðinu.