Á laugardaginn næstkomandi verður Íslandsbanka-Reykjavíkurmaraþon haldið í 22. sinn. Hjördís Guðmundsdóttir, kynningastjóri hlaupsins, segir að undirbúningurinn hafi gengið vel en mikil vinna liggi að baki því að halda svona hlaup. "Ímyndin er einhvernvegin svo jákvæð og skemmtileg, þannig að það er auðveldara að selja hugmyndina. Þetta krefst hins vegar mikils undirbúnings og útgjöldin eru gífurleg. Ég hafði ekki trúað því sjálf fyrr en ég byrjaði að vinna í þessu, hvað umfang svona hlaups er mikið. Það er ekki nóg að skjóta úr byssunni niðri við Lækjargötu og senda hlauparana af stað, eins og margir halda," segir hún.
Margt sem þarf að huga að
Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) stendur fyrir framkvæmd Íslandsbanka-Reykjavíkurmaraþons en Hjördís segir að hlaupið hafi ekki náð að skila gróða síðustu ár. "Það er kostnaður við lokun gatna, brautargæslu, hljóðkerfi - en svo er auðvitað kostnaður við númer, tímaflögur, boli, verðlaunapeninga, markaðsetningu, undirbúning og svo framvegis," segir Hjördís. "Það eru margir sem halda að við séum með nóg af fjármagni og við séum jafnvel í gróðastarsemi, en svo er ekki. Við erum bara að halda þessu gangandi."
Hjördís segir að hlaupið hafi náð að vinna sé sess sem einn skemmtilegasti viðburður sumarsins. "Ég finn fyrir rosalega jákvæðri ímynd meðal almennings, auk þess sem mikil vakningu verður fyrir aukinni hreyfingu," segir hún og bætir við að menningarnótt hefjist í ár með hlaupinu. "Við erum í góðu samstarfi við borgina (Höfuðborgarstofu) og í fyrra markaði upphaf Skemmtiskokksins í fyrsta sinn upphaf menninganætur líkt og í ár. Borgarstjóri mun setja menningarnótt með því að skjóta hlaupurum af stað eins og hefð er, borgarstjóri Reykjavíkurborgar er einmitt verndari hlaupsins.
Borgum ekki hetjum fyrir að mæta
Það tíðkaðist áður að bjóða stórhlaupurum að taka þátt í hlaupinu. Hjördís segir að ekki hafi verið lögð jafn mikil áhersla á það síðustu ár. "Við vildum eyða meira púðri í skemmtunina og því tengt, því við teljum að því skemmtilegra sem hlaupið er því skemmtilegra verður það fyrir alla að vera með, einnig maraþonhlauparana. Við reiknum þó með um 500 útlendingi, í hlaupið, auk þess sem við bjóðum sigurvegaranum frá því í fyrra, Svíanum Måns Höiom, en í því fellst frír flugmiði og þátttaka í hlaupinu."
Þeir sem taka þátt í hlaupinu fá meðal annars bol, pastaveislu, tímaflögu og þeir sem komast í mark fá verðlaunapening. Ekki eru peningaverðlaun fyrir fyrstu sætin eins og þekkist í mörgum erlendum hlaupum en þrír fyrstu í hverjum flokki í hálfu og heilu maraþoni fá flugmiða frá Icelandair, auk þess sem fyrstu þrír fá veglega verðlaunagripi. Þeir fótfráustu gætu þó unnið sér smá pening með því að setja brautarmet en 1.000 dollarar (60.000 kr.) er fyrir brautarmet í heilu (maraþoni) og 500 dollarar (30.000 kr.) hálfu maraþoni.
Hjördís segir að Íslandsbanka-Reykjavíkurmaraþon sé enn lítið hlaup á heimsmælikvarða. Sérstaklega þegar litið er til keppni í heilu maraþoni, þar sem keppendur eru aðeins um 300. "Við gætum gert meira af því að kynna hlaupið erlendis en það kostar bæði tíma og peninga. Við höfum þó verið kynna okkur í þessum stóru hlaupum úti, auk þess sem fjallað hefur verið um hlaupið í einu stærsta hlaupablaði heims, Runners World . Einnig höfum við auglýst í Distance Running sem er mikið lesið blað í hlaupaheiminum," segir Hjördís en hún telur að heimasíða hlaupsins sé að selja mest. "Í síðasta mánuði héldum við "Ultra Marathon", sem er kennt við Laugaveginn (55 km), þar sem hlaupið er frá Landmannalaugum í Þórsmörk. Í hlaupinu tóku þátt blaðamaður og ljósmyndari frá Runners World , blaðamaðurinn tók þátt í hlaupinu og við keyrðum ljósmyndarann um fjöll og firnindi til að ná góðum myndum. Þeir áttu ekki orð yfir fegurðinni sem við þeim blasti því verður gaman að sjá greinina þegar hún birtist. Þetta á eflaust einnig eftir að selja Íslandsbanka-Reykjavíkurmaraþon."
Aukin áhersla á skemmtanagildi
Reykjavíkurmaraþon gerði í vor samstarfssamning við Íslandsbanki til næstu þriggja ára. Með tilkomu bankans sem aðalstyrktaraðila breyttist nafnið og bætist því Íslandsbanki framan við Reykjavíkurmaraþon. Hjördís segir að þetta þekkist í hlaupum erlendis og tekur hún dæmi um Londonmaraþonið, sem heitir eftir smjörlíkinu Flora. Hún segist vonast með tilkomu styrktaraðila sem þessum verði hlaupið enn flottara. "Með tilkomu bankans er verið að leggja meiri áherslu á skemmtunina. Þannig að þeir sem hafa ekki áhuga á að taka þátt í hlaupinu sjálfu geti haft gaman af því að mæta og horfa á. Meðal tónlistaratriða verður hljómsveitin Í svörtum fötum en þarna verður einnig karlakór og fleira," segir Hjördís. "Það er líka ætlunin að skemmta hlaupurunum á leiðinni. Á þriggja kílómetra leiðinni verða þrjú tónlistaratriði á okkar vegum og að minnsta kosti eitt atriði á tíu kílómetra leiðinni en á þeirri leið ætlum við að treysta meira á að fólk komi sjálft út að spila. Það voru einhverjir sem gerðu það í fyrra, krakkar trommuðu á kökubox og einhverjir komu út með hljóðfæri og spiluðu fyrir hlauparana, og var það alveg geggjað samkvæmt þeim sem hlupu," segir hún en leggur þó áherslu á skemmtiatriðin megi ekki taka athyglina frá keppninni. "Við viljum auðvitað hvetja fólk til að styðja við hlauparana í öllum vegalengdum en fólk getur nálgast kort af leiðunum á heimasíðu hlaupsins. (marathon.is)."
Hjördís segir að auk þess að leggja meiri áherslu á skemmtanagildið hafi bankinn staðið fyrir undirbúningshópum síðustu tvo og hálfan mánuð. "Þar hafa allir fengið æfingaáætlanir en um 100-150 manns hafa verið að mæta á reglulegar æfingar. Um 450 eru skráðir í hópinn en margir hafa af þeim eru ekki að mæta á æfingarnar heldur fara sjálfir eftir æfingaráætlun sem sendar hafa verið frá bankanum."
Tölur frá hlaupinu 2004:
Heildarmagn hlaupið: 39.623 km
Þátttökugjöld: 5.2 milljónir
Fjöldi starfsmanna á keppnisdegi: 250 starfsmenn
Magn af Barilla pasta í pastaveislu: eftir suðu er magnið rúmlega 500 kg (1/2 tonn)
Magn af sósu í pastaveislu: rúmlega 200 lítrar
Magn af salatblöndu í pastaveislu: 150 kg
Magn af Dressing í pastaveislu: 50 ltr
Magn af Poweraid: 5000 lítrar
Erlendir keppendur: 395 (frá 33 löndum).
Fjöldi af nælum til að festa keppnisnúmerið: 15.000
Fjöldi keppenda:
Árið 1984 (1): þátttakendur
Árið 1994 (10): 3270 þátttakendur
Árið 2004 (20): 3821þátttakendur
Brautarmet í RM
Maraþon KK: Ceslovas Kundrotas (LIT) árið 1993. Tími 2:17:06
Maraþon KVK: Angharad Mair (GBR) árið 1996. Tími 2:38:47
Hálft maraþon KK: Onesmo Ludago (TAN ) árið 1998. Tími 1:05:18
Hálft maraþon KVK: Martha Ernstsdóttir (ISL) árið 1996. Tími 1:11:40