Lopapeysan Flateyri, sem hönnuð er af Ásu Steinars ljósmyndara, vakti mikla lukku á opnunarviðburði sem 66°Norður hélt í verslun sinni á Laugavegi á dögunum en Ása hannar lopapeysuna í samstarfi við útivistarmerkið.

Í tilkynningu segir að lopapeysan hafi nánast selst upp á viðburðinum en samkvæmt upplýsingum frá 66°Norður er þó enn eitthvað til af peysunni í versluninni á Laugavegi og á vefverslun fyrirtækisins.

Ása er að vonum afar ánægð með viðtökurnar en hún segir það lengi hafa verið draum sinn að hanna lopapeysu. Peysan er úr 100% íslenskri ull, er innblásin af uppáhaldsstaðnum hennar á Vestfjörðum, Flateyri, og bleiku vetrarsólarlögunum sem eru regluleg þar.

„Ullarpeysur hafa alltaf verið stór hluti af lífinu mínu í útivistinni, enda hlýjasta flík sem maður getur klæðst. Íslenska ullin okkar er einstök. Lopapeysan er hlýjasta og notalegasta flíkin í fataskápnum mínum akkúrat núna og mun vera það áfram, enda endast ullarpeysur í mörg ár og frábærar í komandi vetur,” segir Ása.

Samkvæmt 66°Norður er verið að reyna að framleiða meira magn af lopapeysunni til að anna eftirspurn og líklegt er að fleiri eintök verði í boði um miðjan desember.