Bílaframleiðandinn MG afhjúpaði í Lundúnum í dag fyrstu ljósmyndirnar af annarri bílgerð sinni sem framleiðandinn hyggst kynna í Evrópu.

Um er að ræða tengiltvinnbíl sem verður viðbót við hinn 100% rafknúna ZS EV sem kom á markað á síðasta ári í völdum löndum Evrópu. Áætlað er að MG HS komi á Evrópumarkað á fyrsta ársfjórðungi 2021.

MG HS er búinn rafknúinni aflrás og öflugri bensínvél sem vinnur snurðulaust með rafmótornum og rafhlöðu hans til að tryggja hnökralaus afköst, afl og drægni. MG HS er rúmgóður sportjepplingur með tengiltvinnaflrás rafmótors og bensínvélar, sem sérstaklega var hannaður til að veita ökumönnum áhyggjulausan og umhverfisvitaðan akstur sem sé öllum aðgengilegur. MG mun í desember nk. veita frekari upplýsingar um þennan nýja tengiltvinnknúa sportjeppling samhliða áætlunum um tímsetningu markaðskynningar hans í Evrópu, sem verður mismunandi eftir löndum.

,,Reynsla ökumanna er í fyrirrúmi hjá MG,“ segir Matt Lei, forstjóri MG Motor Europe og bætti við að MG hjálpaði bíleigendum að skipta yfir í hinn rafmagnaða heim með vel hannaðri og umhverfismeðvitaðri akstursupplifun sem er í senn hagnýt, örugg og hagkvæm.

,,MG HS tengiltvinnbíllinn uppfyllir í senn þarfir umhverfismeðvitaða ökumannsins og meðvitaða atvinnubílstjórans. Í dag vilja ökumenn geta ekið á varanlegu rafmagni án þess að þurfa að hafa miklar áhyggjur af drægni bílsins. Þeim sem eru ekki enn tilbúnir fyrir 100% rafknúinn bíl bjóðum við tengiltvinnbílinn MG HS sem viðbót við rafknúna sportjepplinginn MG ZS EV," sagði Matt Lei á kynningunni í dag.