Fyrirtæki og stofnanir skoða nú hvernig hægt sé að notfæra sér gervigreind til þess að einfalda og skapa hagræði í sinni starfsemi á öruggan hátt. Það var umfjöllunarefnið á hinum fjölsótta viðburði OK, HPE AI Innovation Day.

Mikill áhugi var á viðburðinum og var hvert sæti skipað.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Á viðburðinum sögðu sérfræðingar frá Hewlett Packard Enterprise hvernig nýta megi gervigreind meðal annars til þess að taka fyrstu ákvarðanir, spá fyrir og sjálfvirknivæða án þess að hlaða viðkvæmum gögnum yfir í skýið.

Patrick Couch frá HPE.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Örugg notkun á gervigreind á við um flesta starfsemi, svo sem fjármálafyrirtæki, tryggingafélög , sjúkrahús, opinbera stjórnsýslu eða orkufyrirtæki sem vilja nýta sér gervigreindina með skilvirkum hætti,“ segir Björgvin Arnar Björgvinsson, forstöðumaður Innviðalausna hjá OK.

Ísold Einarsdóttir, markaðsstjóri OK.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Björgvin bendir á að í mörgum tilvikum séu slíkar upplýsingar, sem gervigreindin á að nýta, trúnaðargögn sem ekki er viturlegt að senda frá sér.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

„Segjum til dæmis að bankar vilji nota gervigreind til þess að sjálfvirknivæða einhver umsóknarferli eða tryggingarfélög að gera betri áhættumat. Þá þurfa fyrirtækin að koma sér upp tækjabúnaði til þess að keyra gervigreindarvirkni innanhúss hjá sér. Forritarar nútímans og framtíðarinnar eru farnir að búa til lausnir til þess að leysa svona gervigreindarverkefni.“

© Aðsend mynd (AÐSEND)