Veiðihúsið við Straumfjarðará var byggt árið 2005 en allt tekið í gegn fyrir nokkrum árum þegar nýir leigutakar tóku við ánni. Dreisam ehf., sem er í eigu Jónasar Hagan Guðmundssonar, hefur verið með Straumfjarðará á sínum snærum síðan árið 2021. Daníel Njarðarson, hefur verið staðarhaldari og yfirleiðsögumaður í Straumfjarðará undanfarin ár.

Óhætt er að segja að vel fari um veiðimenn í þessu glæsilega veiðihúsi, sem fellur vel inn í náttúruna í landi Dals við efri hluta árinnar. Ekið er að húsinu frá þjóðveginum um Vatnaleið.

Í veiðihúsinu er saunaklefi og heitur pottur fyrir utan með útsýni yfir ána.
Í veiðihúsinu er saunaklefi og heitur pottur fyrir utan með útsýni yfir ána.

Veitt er á fjórar stangir í Straumfjarðará. Í veiðihúsinu eru aftur á móti 5 tveggja manna herbergi þannig að það er rúmt um veiðimenn. Hvert herbergi er með sér baðherbergi og sturtu. Setustofan er fallega innréttuð og þar er arinn, sem veiðimenn geta yljað sér við á íslensku sumarkvöldi.

Setustofan í veiðihúsinu.
Setustofan í veiðihúsinu.

Við húsið er saunaklefi og heitur pottur, þar sem veiðimenn geta borið saman bækur sínar á meðan þeir láta þreytuna líða úr sér eftir daginn. Straumfjarðará er seld með fullri þjónustu og geta veiðimenn valið af matseðli áður en þeir mæta á staðinn.

Veiðihúsið fellur vel inn í náttúruna.
Veiðihúsið fellur vel inn í náttúruna.

Daníel, staðarhaldari og yfirleiðsögumaður, segir að fullbókað sé í Straumfjarðará í sumar og biðlistinn þónokkuð langur. Mikið sé um endurbókanir í ána og hafi sem dæmi einn erlendur hópur stundað veiðar við Straumfjarðará í tugi ára forfallalaust.

„Þó detta stundum inn dagar með stuttum fyrirvara sem við viljum alltaf hjálpa okkar veiðimönnum að losa til þeirra sem eru á biðlistanum ef svo ber undir.“

Full þjónusta er í veiðihúsinu við Straumfjarðará.
Full þjónusta er í veiðihúsinu við Straumfjarðará.

Í landi Dals er einnig seld lúxusgisting í nýuppgerðu lögbýli, sem er aðeins steinsnar frá veiðihúsinu og leigt er til stærri hópa sem oftast nær eru erlendir.

Nánar er fjallað um málið í sérblaðinu Veiði sem fylgdi Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér.