Um 100 manns mættu á hinn svokallaða Heimsóknardag hjá KAPP Skaganum en hann var haldinn í gær í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Krókatúni á Akranesi.

Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP, og Ólafur Karl Sigurðarson, framkvæmdastjóri KAPP Skagans, tóku á móti gestum og kynntu þeim starfsemina ásamt því að gefa þeim innsýn í fyrstu mánuði rekstursins sem og framtíðaráformin.

Eftir það var tekinn göngutúr um framleiðslu félagsins auk þess sem boðið var upp á léttar veitingar.

Gjaldþrot Skagans 3X á síðasta ári var högg fyrir atvinnulíf á Akranesi en þá misstu 128 manns vinnuna. KAPP keypti hins vegar eignir þrotabúsins í október sl. og úr varð félagið KAPP Skaginn, sem hóf formlega starfsemi 1. nóvember.


„Við erum mjög ánægð að við séum að leggja af stað aftur í vegferð með öflugu fyrirtæki sem KAPP er. Við höfum miklar væntingar til KAPP Skagans. Þetta er veruleiki sem við vorum ekki endilega að reikna með um mitt sumar í fyrra,“ segir Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi.

„Vegferð eins og sú sem hér hefur verið hafin getur ekki átt sér stað nema í samvinnu og með stuðningi margra aðila. Því fannst okkur tilvalið að bjóða haghöfum og hagsmunaaðilum í heimsókn til okkar, til þess að kynna fyrir þeim verkefni síðustu mánaða, framtíðarsýn og gefa innsýn inn í reksturinn,“ segir Ólafur Karl, framkvæmdastjóri KAPP Skagans.