Tveggja daga Superclass-námskeið fór fram dagana 19. - 20. júní og gaf sprotateymum innsýn frá sérfræðingum landsins í nýsköpun. Markmiðið var að byggja grunn fyrir næstu skref í vexti, fjármögnun og þróun.

Námskeiðið er hluti af undirbúningi fyrir Startup SuperNova-hraðalinn og var sett upp af KLAK - Icelandic Startups í samstarfi við Nova og Huawei. Superclass snýst um að efla frumkvöðla til að skapa öflug teymi, skýra stefnu og laða til sín rétta fjárfesta.

Dagur eitt hófst með yfirferð frá Jennu Björk Guðmundsdóttur og Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur hjá KLAK, sem lýstu ferðalaginu frá Superclass og að hraðlinum sjálfum.

Andri Heiðar Kristinsson frá Frumtak Ventures afhjúpaði svo hvernig fjárfestar hugsa og hverju þeir leita að í ferðalagi frumkvöðla áður en Elfa Arnardóttir frá Nova leiddi teymin svo í vinnustofu.

Harpa Magnúsdóttir frá Hoobla var með framsögu um teymisuppbyggingu og loks vann KLAK með teymunum við að þróa kynningarefni og aðgerðaáætlanir.

Dagurinn endaði með samtali við Hjálmar Gíslason, stofnanda GRID, þar sem teymin fengu að spyrja opinna spurninga og komu teymin með spurningar sem spönnuðu allt frá fyrsta teyminu í tilfinningalega áskorun þess að tilkynna fjárfestum um að fjárfestingin þeirra væri misheppnuð.

Á degi tvö lagði Ýmir Örn Finnbogason grunn að fjármálavitund sprota og síðan tóku við fyrirlesararnir Dr. Xueli An hjá Huawei og Magnús Ingi Óskarsson hjá KLAK um tæknistefnur framtíðarinnar og áhrif þeirra á sprota.
