Heilbrigðistæknifyrirtækið Helix stóð fyrir viðburði í Hannesarholti í síðustu viku þar sem fjallað var um stöðu og þróun heilbrigðistækni á Íslandi.

Birna Björnsdóttir, Sidekick Health, Þórdís Rögn Jónsdóttir, stofnandi Rekovy, Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, Sidekick Health og Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður heilbrigðismálaráðherra.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Á dagskránni voru erindi frá leiðandi sérfræðingum og frumkvöðlum á sviði heilbrigðistækni sem deildu innsýn sinni og reynslu með gestum.

Atli Þorbjörnsson framkvæmdastjóri Gangverk, Einar Geirsson forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix, Margrét Ólafsdóttir barnalæknir, Geir Gunnlaugsson barnalæknir og professor emeritus.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Þau ræddu m.a. um árangur sem þegar hefur náðst með innleiðingu hugbúnaðarlausna í heilbrigðiskerfinu og hvar helstu tækifæri framtíðarinnar liggja.

Brynjólfur Borgar Jónsson stofnandi og framkvæmdasjtóri DataLab, Karl Guðmundsson, forstjóri Florealis og Héðinn Jónsson, forstöðumaður vöruþróunar hjá Helix.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)
Kjartan Þórsson, stofnandi Prescriby og Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, sérfræðingur í vísindum og nýsköpun hjá Fönn Consulting.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Jón Magnús Kristjánsson, aðstoðarmaður heilbrigðismálaráðherra, opnaði viðburðinn og fór yfir stöðu og stefnu stjórnvalda í heilbrigðistæknimálum á Íslandi.

Kjartan Þórsson, Einar Geirsson forstöðumaður, Hulda Hallgríms, Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, Jón Magnús Kristjánsson, Arna Harðardóttir og Erla Tinna Stefánsdóttir.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch hjá Fönn Consulting kynnti niðurstöður nýrrar greiningar á stöðu heilbrigðis- og lífvísindageirans á Íslandi. Í erindi sínu lagði hún áherslu á mikilvægi þess að skapa stuðningsumhverfi fyrir áframhaldandi þróun og nýsköpun í geiranum.

Ægir Þór Steinsson, framkvæmdastjóri Retina Risk, Ragnar Kormáksson, framkvæmdastjóri Janus heilsuefling og Héðinn Jónsson, forstöðumaður vöruþróunar hjá Helix.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox Medical/Nox Health, sagði frá alþjóðlegri vegferð Nox og lýsti hvernig vottuð stafræn meðferðarúrræði eru að gegna sífellt stærra hlutverki í svefnmeðferð á heimsvísu.

Sigurður Þórarinsson, nýsköpunar- og tæknistjóri Landspítala og Magnús Ingi, forstöðumaður Klak VMS.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)
Matthías Leifsson, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Leviosa og Ari Daníelsson, forstjóri Origo.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Kjartan Þórsson, stofnandi Prescriby, deildi reynslusögu fyrirtækisins sem hefur þróað lausnir sem leysa alvarleg klínísk vandamál innan heilbrigðiskerfisins.

Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar og hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Einar Geirsson, forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix ræddi síðan að lokum um mikilvægi þess að endurhugsa fyrirkomulag tímabókana í íslenska heilbrigðiskerfinu. Hann sagði slíkar breytingar geta valdeflt sjúklinga til að taka virkari þátt í eigin meðferð.

Hulda Hallgrímsdóttir, frakvæmdastjóri Nox og Ingvar Hjálmarsson, formaður hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

„Það er ljóst að heilbrigðistækni á Íslandi er svo sannarlega í vexti og við getum verið stolt af þeirri grósku sem á sér stað hér. Við höfum náð langt með þeim fjölmörgu lausnum sem hafa þróast hér og við getum verið bjartsýn á að byggja upp heilbrigðiskerfi framtíðarinnar,“ sagði Arna Harðardóttir, framkvæmdastjóri Helix, sem stóð að viðburðinum að erindum loknum.

Bryndis Alexanders hjá Íslandsstofu og Hólmfríður Einarsdóttir, þjónustusérfræðignur hjá Helix.
© Hulda Margrét (Hulda Margrét)

Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins, stýrði fundinum og ræddi um þróun heilbrigðistæknimála og stefnu stjórnvalda við lok fundar.