Eftir netbóluna miklu, sem sprakk með miklum hvelli upp úr síðustu aldamótum, mátti heita nær vonlaust að selja svokölluð netfyrirtæki, en það eru þau fyrirtæki kölluð sem eingöngu bjóða þjónustu sína á netinu. Ein og ein sala gekk þó fram á þessum tíma, og ein af þeim var þegar þá nýstofnað netfyrirtæki, E2K ehf., keypti vefinn Netdoktor.is af Kögun hf. fyrir fimm árum. Söluverðið til Kögunar þótti á sínum tíma nokkuð hátt, enda mjög lítið um sölur á vefjum vegna nýsprunginnar netbólu.
Nú hefur rofað til og sögur heyrast nú um ágætar sölur á þekktum vefjum og lénum í eigu íslenskra netfyrirtækja og hefur nú vefmælingarfyrirtækið Modernus tekið að sér að hafa milligöngu um kaup og sölu. Eftir því sem fyrirtækjunum á netinu hefur vaxið fiskur um hrygg virðist nú sem æ fleiri fjárfestar líti á ný á þau sem alvörufyrirtæki. Áðurnefndur vefur, doktor.is, hefur nú verið seldur heilsuþjónustunni Liðsinni ehf.