Nýjasti meðlimur Hyundai-fjölskyldunnar er borgarrafbílinn Inster sem nú er mættur til landsins í Kauptún. Inster var á dögunum kosinn rafbíll ársins hjá World Car Awards 2025 og var í öðru sæti í baráttunni um heimsbíl ársins á sömu verðlaunahátíð í New York.

Þrjár útbúnaðargerðir eru í boði; grunngerðin Comfort, Limited og svo vandaðasta gerðin Calligraphy.

Grunngerð Inster, sem er fjögurra sæta, er búin 97 hestafla rafmótor og 42 kWh rafhlöðu sem gefur allt að 327 km drægni. Báðar hinar gerðirnar, Limited og Calligraphy eru fimm sæta, búnar 115 hestafla rafmótor og 49 kWh rafhlöðu.

Drægni Limited er allt að 370 km og Calligraphy allt að 360 km sem eykur notagildi beggja gerða talsvert. Inster er unnt að hlaða úr 10% í 80% á um 30 mínútum. Hámarkshraði er á bilimu 140 til 150 km/klst. eftir gerðum og hröðun úr kyrrstöðu í 100 km/klst. 10,6 sek. til 11.7 sek.

Inster er um það bil 3,8 m að lengd og 1,6 m breiður. Vegna háreistrar hönnunar farþegarýmisins er Inster rúmur að innan og með háum rúðum sem veita fínasta útsýni.

Farangursrýmið er á bilinu 238 til 351 lítri. Í stjórnborði farþegarýmisins eru tveir 10,25 tommu stafrænir skjáir, annar fyrir mælaborð og hinn fyrir upplýsingar og afþreyingu sem veitir fjölbreyttar upplýsingar um bílinn og veitir aðgang að ýmsum öppum, s.s. fyrir tónlist og fleira.

Að auki eru innstungur fyrir mismunandi viðtæki til reiðu. Þá er einnig stæði fyrir þráðlausa símahleðslu í miðjustokki auk þess sem í vönduðustu gerðinni er hægt að tengja Inster við síma og snjallúr til að læsa og aflæsa bílnum svo fátt eitt sé nefnt.