Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar hefur gert rammasamkomulag við Eyjatölvur um kaup á tölvubúnaði fyrir grunnskólana í Vestmannaeyjum, Hamarsskóla og Barnaskólann. Búnaðurinn er allur frá Tæknivali, sem er samstarfsaðili Eyjatölva um tölvubúnað og þjónustu.
Samningurinn tekur til almenns tölvubúnaðar fyrir skólana, borðtölva, fartölva, netþjóna, prentara og ýmissa annarra jaðartækja. Tölvubúnaðurinn er frá evrópska stórfyrirtækinu Fujitsu Siemens Computer, en fyrirtækið er einn stærsti framleiðandi tölvubúnaðar í heiminum og leggur sérstaka áherslu á umhverfisvænan tölvubúnað, vottaðan samkvæmt viðurkenndum umhverfisstöðlum. Tölvubúnaður frá Fujitsu Siemens hefur einnig hlotið mikið lof fyrir gæði og áreiðanleika.
Eyjatölvur og Tæknival hafa verið samstarfi vel á annað ár. Samstarfið felur í sér að Eyjatölvur eru endursöluaðili á búnaði og þjónustu á þeim vörum sem Tæknival býður.
?Samvinnan er góð og okkur mun nýtast vel þetta nána samstarf við Tæknival við uppsetningu tölvubúnaðarins fyrir skólana og síðar meir þjónustu samkvæmt þessum nýgerða rammasamningi við umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyja," segir Guðbjörn Guðmundsson framkvæmdastjóri Eyjatölva.