Í stað hefðbundinna pakka geturðu nú sett upplifanir undir jólatréð, gjafir sem veita gleði og ævintýri langt fram yfir hátíðarnar. Hvort sem það eru náttúruferðir, tónleikar, leikhús eða afslöppun í heilsulind, þá eru upplifunargjafir tilvaldar til að gefa fólki tækifæri til að njóta samverustunda og skapa nýjar minningar.