Burðarás hf. hefur samið við Skyggni hf. um að setja upp og hýsa miðlægt tölvukerfi félagsins. Samningur félaganna er gerður í kjölfar þess að rekstur Burðaráss og Eimskips var aðgreindur. Áður notuðu félögin að mestu sömu upplýsingakerfi og Skyggnir sá einnig um rekstur þeirra. Burðarás er móðurfélag flutningafélagsins Eimskips en það ber nú nafnið Eimskipafélag Íslands. Starfsemi Burðaráss hf. er á sviði fjárfestingarstarfsemi og hlutabréf þess eru skráð í Kauphöll Íslands.
Árni Jón Eggertsson, sölu- og viðskiptastjóri Skyggnis, segir uppsetningu tölvuumhverfis Burðaráss hafa verið ögrandi verkefni en í hraðri og oft flókinni fjármálaumsýslu sé afar mikilvægt að öll kerfi starfi hnökralaust frá fyrsta degi. Í hýsingarsal Skyggnis voru settir upp sérstakir miðlarar sem þjóna kerfum Burðaráss. Að sögn Guðrúnar Loftsdóttur hjá Burðarási var heppilegasta lausnin að hýsa miðlara tölvuumhverfisins hjá traustum fagaðila þar sem daglegur rekstur þess er í öruggri umsjá fagmanna allan sólarhringinn, alla daga ársins. Hún segir starfsmenn Skyggnis búa yfir mikilli þekkingu á þeim lausnum sem félagið notar og að vinnubrögð hafi öll verið til fyrirmyndar.
Stjórnendur Burðaráss hafa aðgengi að öllum gögnum með VPN-tækni og hugbúnaði frá Open Hand sem gerir þeim kleift að lesa allan tölvupóst í farsímum. Þeir eru jafnframt beintengdir við pósthús Burðaráss, Microsoft Exchange 2003. Með þessu móti hafa stjórnendur félagsins samtímis aðgang að öllum upplýsingum sem og dagbók og lista tengiliða. Burðarás er með Navision bókhaldskerfi frá Maritech og Origo þróaði vef félagsins, www.burdaras.is. Skyggnir hefur jafnframt umsjón með rekstri þessara kerfa.
Burðarás hefur nú aðsetur í Pósthússtræti 2 en mun á næstu dögum flytja starfsemi sína í framtíðarhúsnæði að Sigtúni 42.