Leyfðu persónleikanum að skína
- Það þykir heillandi að vera trúr sjálfum sér og leyfa persónulegum stíl sínum að skína í gegn. Gerðu baðherbergið að þínu.
Náttúrusteinar
- Náttúrlegir steinar eru vinsælir og geta sett fallegan svip á heimilið. Val á steinum endurspeglar oftar en ekki persónuleikann þinn sem gerir heimilið þitt einstakt.
Klassíkin klikkar ekki
- Einföld og tímalaus hönnun er alltaf falleg. Látlausir litir og einfaldleikinn stenst alltaf tímans tönn.
Svart og hvítt
- Svartur og hvítur eru andstæðir litir sem gefa dýpt. Það er hægt að leika sér mikið með dýptina eftir því hvor liturinn er ríkjandi.
Ólík áferð
- Í dag er vinsælla að leika sér að blanda saman ólíkum áferðum í stað margra lita. Fáir litir og fjölbreytt efni geta búið til mikla hlýju á baðherberginu þínu.