66°Norður tekur í fyrsta sinn þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn í lok janúar með sérstakri sýningu sem ber heitið „99 ár – 867,815,464 klukkustundir“.

Nafnið er táknrænt fyrir langa sögu fyrirtækisins sem er orðið 99 ára. Það er einnig viðeigandi út frá nálgun 66°Norður sem snýr að hönnun og gæðum.

„Tölur sýna að 60% af fatnaði er hreinlega hent og endar þá í urðun eða vera brenndur og því sjaldan verið mikilvægara að kaupa fatnað sem endist og getur gengið áfram kynslóða á milli,“ segir í tilkynningu.

Sýningin verður 28. janúar milli 11:00 – 17:00 á Rådhuspladsen 37 í Kaupmannahöfn. Á sýningunni verða dregnar fram fjölmargar sögulegar flíkur, sumar allt að 70 ára gamlar. Þar má til að mynda nefna fyrsta sjóstakkinn og fatnað frá Ólympíuleikum.

Sýningin mun meðal annars bjóða upp á snertiskynjun, hljóðupplifun og íslenskan foss og veitir gestum innsýn í hönnunarferli og handverk fyrirtækisins á einstakan hátt. Sýningin mun koma til með að flakka og verður til að mynda hluti sýnilegur í London og á Íslandi síðar á árinu.

„Þetta er ekki hefðbundin tískusýning sem er 30 mínútur og beint í næstu vörulínu. Okkur þykir mikilvægt að ögra tískuviðmiðum enda hönnum við alla okkar stíla þannig að þeir séu margnota, tæknilegir og tímalausir. Við erum gríðarlega stolt af okkar íslensku arfleifð og því fannst okkur mikilvægt að hafa sýninguna aðgengilega almenningi í heilan dag og gefa fólki tækifæri til að kynnast vörumerkinu og sýna íslenska hönnun í nýju ljósi,“ segir Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður.