Stafræna auglýsingastofan The Engine Iceland ásamt Pipar\TBWA hefur hlotið fjórar tilnefningar (e. Shortlist) til Evrópsku Leitarverðlaunanna eða European Search Awards 2020. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Tilnefndar eru leitarherferðir (PPC) fyrir Gray Line, Olís og Taxback International, sem hlaut tvennar tilnefningar. Haft er eftir Hauki Jarli Kristjánssyni, sem hafði yfirumsjón með framkvæmd herferðanna, að hann hafi verið sérstaklega ánægður með tilnefningu Gray Line.
„Það var svo skemmtilegt að vinna úr þeirri áskorun sem var þar til staðar. Mikill samdráttur í ferðaþjónustu ásamt því að áhugi hafði mikið færst yfir í að vera á bílaleigubílum frekar en í hópferðum.“
Hreggviður Magnússon leiðtogi í stafrænni markaðssetningu segir tilnefningarnar mikla viðurkenningu. „Ekki síður fyrir okkar góðu viðskiptavini sem auðvitað leitast eftir árangri af starfi okkar.“
Hann segir skemmtilegt hversu fjölbreyttar hinar tilnefndu herferðir voru. ,,Leitarherferðin fyrir Gray Line miðaði að því að markaðsaðstæður voru erfiðar og minnkandi áhugi var í leit að Íslandi sem ferðamannastað. Samt sem áður var árangurinn í netsölu mjög góður. Olís Kvizz gekk framúr væntingum með þátttöku og góð tenging myndaðist á milli Olís og viðskiptavinarins. Taxback International er alþjóðlegt fjártæknifyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með höfuðstöðvar á Írlandi. Fyrir þann viðskiptavin vorum við tilnefnd bæði fyrir leitarherferð (PPC) á fyrirtækjamarkaði ásamt Best Integrated Campaign sem er aðal flokkurinn eða sem kalla mætti herferð ársins,“ segir Hreggviður ennfremur.