Ágúst Ólafur Ágústsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra. Ágúst Ólafur hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara þann 13. júní næstkomandi, að því er kemur fram í tilkynningu Reykjavíkurborgar.

Katrín M. Guðjónsdóttir, sem var ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra um miðjan mars, hefur beðist lausnar frá starfi.

Ágúst Ólafur er fyrrverandi alþingismaður Samfylkingarinnar og efnahagsráðgjafi forsætisráðherra í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Þá sat hann í bankaráði Seðlabanka Íslands í fjögur ár og gegndi m.a. formennsku í viðskiptanefnd Alþingis, Evrópunefnd forsætisráðherra og í framkvæmdasjóði aldraða.

Hann vann sem sérfræðingur á aðalskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í New York og hefur að undanförnu stundað doktorsnám í opinberri stjórnsýslu. Samhliða hefur hann kennt við Háskóla Íslands ásamt því að sinna ráðgjafarstörfum meðal annars fyrir Sjúkraliðafélag Íslands, Rannsóknarsetur skapandi greina og Ljósið.

Ágúst er menntaður lögfræðingur, hagfræðingur og stjórnsýslufræðingur og á sæti í stjórn Dýraverndarsambands Íslands og Evrópuhreyfingarinnar.

Ágúst er kvæntur Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur, tannlækni og fyrrverandi formanni Tannlæknafélags Íslands.