Anton Birkir Sigfússon hefur verið ráðinn í nýja stöðu forstöðumanns sjálfbærni og samfélagsábyrgðar hjá Högum hf.
Í starfinu mun hann móta og innleiða stefnur, markmið og aðgerðaráætlanir félagsins tengdum málaflokknum ásamt því að hafa umsjón með sjálfbærniuppgjöri Haga.
Anton kemur til Haga frá Klöppum, hugbúnaðarfyrirtæki á sviði sjálfbærni, þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri sjálfbærni og vaxtar. Hann er með ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
„Hagar hafa frá upphafi lagt metnað í að þjóna neytendum á Íslandi með ábyrgum hætti og stefnum við að því að vera áfram til fyrirmyndar þegar kemur að sjálfbærni í öllum okkar rekstri. Anton býr að mikilvægri reynslu á þessu sviði úr fyrri störfum og því fengur að því að fá hann til liðs við það öfluga teymi sem fyrir er hjá Högum og dótturfélögum,” segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.