Markaðsstofan Moss réð nýverið tvo starfsmenn. Aþena Elíasdóttir hefur gengið til liðs við stofuna sem grafískur hönnuður og Inga María Björgvinsdóttir sem verkefnastjóri. Moss er markaðsstofa sem starfar m.a. með Steypustöðinni, Valhöll og Vinnupöllum.
Aþena Elíasdóttir hóf störf í október 2024 og kemur til Moss frá auglýsingastofunni Cirkus. Inga María kemur frá Leikbreyti þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri sölu- og innleiðinga.
Áður starfaði Inga María hjá S4S, bæði sem þjónustufulltrúi netverslunar og sölumaður í fyrirtækjadeild.
„Við hjá Moss erum afskaplega ánægð með að fá Aþenu og Ingu Maríu til liðs við okkur. Báðar eru afar hæfileikaríkar og skapandi einstaklingar sem munu hafa jákvæð áhrif á áframhaldandi vöxt og þróun fyrirtækisins,“ segir Tania Lind, framkvæmdastjóri Moss.