Krónan hefur tilkynnt breytingar í stjórnendateymi og hefur Sigurður Gunnar Markússon, sem gegnt hefur hlutverki forstöðumanns þróunar og uppbyggingar verslana Krónunnar, tekið við sem forstöðumaður innkaupa og vöruflokkastýringar.
Sigurður hefur áralanga og víðtæka reynslu af störfum innan Krónunnar síðastliðin 30 ár og leiddi meðal annars innkaup og vöruflokkastýringu í tólf ár fram til ársins 2021.
Samhliða þessum breytingum hefur Gunnhildur Jódís Ísaksdóttir verið ráðin í stöðu forstöðumanns viðskiptaþróunar og umbóta.
Gunnhildur hefur frá byrjun árs 2024 starfað sem verkefnastjóri viðskiptaþróunar og umbóta hjá Krónunni en áður starfaði hún í viðskiptaþróun hjá Volvo Penta í Svíþjóð og síðar sem umbótasérfræðingur hjá Marel hér á landi. Hún er með M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Chalmers University of Technology.