Á aðalfundi Landsvirkjunar sem fram fór í dag var kjörin ný stjórn fyrirtækisins til eins árs. Nýr stjórnarformaður Landsvirkjun er Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst. Hún tekur við af Ingimundi Sigurpálssyni.
Aðrir í stjórn Landsvirkjunar eru: Sigurbjörg Gísladóttir, efnafræðingur við Umhverfisstofnun, varaformaður,, Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Póstsins, Páll Magnússon, bæjarritari í Kópavogi og Stefán Arnórsson, prófessor við Háskóla Íslands.
Úr stjórn gengu Gylfi Árnason verkfræðingur og Jóna Jónsdóttir viðskiptafræðingur.
Varamenn í stjórn Landsvirkjunar eru: Anna Dóra Sæþórsdóttir, dósent við Háskóla Íslands Birgir Jónsson, jarðverkfræðingur við Háskóla Íslands Huginn Freyr Þorsteinsson, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri Jóna Jónsdóttir, viðskiptafræðingur við Háskólann á Akureyri Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir, bóndi á Egilsstöðum