Dolores Rós Valencia hefur verið ráðin forstöðumaður fjar- og vettvangsþjónustu hjá OK. Sem forstöðumaður fjar- og vettvangsþjónustu hjá OK mun Dolores bera ábyrgð á daglegum rekstri þeirrar þjónustu.
Hún var áður verkefnastjóri hjá Ljósleiðaranum þar sem hún leiddi þróun og framkvæmd verkefna með áherslu á ferlaumbætur, samvinnu við hagaðila og framvindueftirlit.
Þar áður starfaði hún sem Service & Operational Manager á Retreat Hotel hjá Bláa Lóninu þar sem hún hafði yfirumsjón með daglegum rekstri, þjónustugæðum og teymisstjórnun.
Dolores hefur lokið námi í APME verkefnastjórnun frá Opna háskólanum og hlotið C-vottun frá Verkefnastjórnunarfélagi Íslands.
„Ég er mjög spennt að leiða frábært teymi sem sinnir bæði fjar- og vettvangsþjónustu við viðskiptavini okkar. Ég vil jafnframt styðja teymið mitt til að vaxa í starfi og skapa gott vinnuumhverfi. Þá hlakka ég til að þróa áfram skýra ferla og vönduð vinnubrögð sem styðja við góða upplifun viðskiptavina,“ segir Dolores.