Einar Pálmi Sigmundsson hefur tekið við starfi forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Hann er sagður reynslumikill sérfræðingur á sviði fjármála og viðskipta með mikla þekkingu á atvinnulífinu, fjárfestingum og kaupum og sölum á fyrirtækjum.

Hann hefur 30 ára reynslu á fjármálamarkaði en Einar var meðal annars fjárfestingarstjóri Kviku eignastýringar á árunum 2017 til 2024.

Þar áður starfaði hann hjá HF Verðbréfum, Arion banka, Kaupþingi og Íslandsbanka, þar sem hann starfaði í tæp 15 ár. Einar Pálmi hefur setið í ýmsum stjórnum, þar á meðal stjórnum Arctic Adventures, Fálkanum, Já, Gallup, Rarik og Íslenska gámafélaginu.

Einar Pálmi er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, með MBA-gráðu frá Rotterdam School of Management og með próf í verðbréfaviðskiptum. Hann er jafnframt með ACI Diploma í fjárstýringu og gjaldeyrisviðskiptum.