Kristján Þorvaldsson hefur tekið við hlutverki forstöðumanns veflausna hjá sérlausnum Advania. Kristján kemur til Advania frá Sjúkratryggingum þar sem hann starfaði sem sviðsstjóri stafrænnar þróunar en áður starfaði hann sem upplýsingatæknistjóri hjá Lyfjastofnun.

Kristján hefur einnig starfað hjá Marel, WOW Air og Orkuveitunni ásamt því að kenna verkefnastjórnun við Háskóla Íslands.

Hann er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og BS gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá sama skóla. Auk þess er Kristján vottaður IPMA verkefnastjóri á C stigi.

„Ég er afar spenntur fyrir nýja starfinu hjá Advania. Ég hef til margra ára verið ánægður viðskiptavinur fyrirtækisins og því er einstakt tækifæri að fá að ganga til liðs við einvala lið sérfræðinga sem á hverjum degi skapa mikið virði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Framundan eru risastór verkefni sem verður gaman að vinna með frábærum viðskiptavinum okkar,“ segir Kristján.

Veflausnir Advania bjóða þjónustu í þróun og hönnum stafrænna lausna fyrir fyrirtæki og stofnanir. Meðal verkefna eru vefverslanir, applausnir og sérsniðnar lausnir sem einfalda ferla, bæta notendaupplifun og tryggja upplýsingaflæði.

„Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá Kristján til liðs við okkur. Hann kemur inn með víðtæka reynslu úr upplýsingatækni og hefur farsællega leitt fjölbreytt stafræn verkefni fyrir bæði stofnanir og fyrirtæki. Okkar viðskiptavinir munu án efa njóta góðs af þeirri reynslu sem hann býr yfir ásamt því sem hann mun styrkja okkar öfluga teymi sérfræðinga sem vinna daglega að því að skapa viðskiptavinum okkar samkeppnisforskot,“ segir Margrét Gunnlaugsdóttir framkvæmdastjóri Sérlausna Advania.