„Í störfum mínum hjá Samtökum atvinnulífsins fékk ég tækifæri til að vinna að áhugaverðum verkefnum með alþjóðlegri tengingu og fékk mikinn áhuga á stöðu íslensks atvinnulífs í alþjóðlegu samhengi. Þau verkefni leiddu mig inn í nýtt starf hjá Íslandsstofu þar sem ég fékk að leiða vinnu við mótun nýrrar langtímastefnu fyrir íslenskan útflutning.“

Bergþóra segir að hún hafi orðið móðir þegar hún var aðeins tvítug og var maðurinn hennar á þeim tíma einnig á kafi í handbolta. Það hafi því ekki hentað litlu fjölskyldunni að fara vestanhafs í framhaldsnám eins og hún hafði lagt á ráðin um frá tíu ára aldri.

Engu að síður hefur hún lagt áherslu á að velja sér störf með alþjóðlegri tengingu. Hún segir það mikilvægt fyrir íslensk fyrirtæki að skapa sér sérstöðu enda séu þau mörgu hver lítil og fjarlæg í alþjóðlegu samhengi.

Fjallað er um málið í Viðskiptablaði vikunnar. Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér.